Um listamanninn
Angela Árnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1988. Hún gekk í Austurbæjarskóla og samhliða lauk hún prófi frá listdansskóla Íslands. Eftir grunnskóla fór hún í listnám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en hélt áfram að sérhæfa sig í listdansi samhliða myndlistarnáminu. Hún útskrifaðist þaðan árið 2009. Meðfram framhaldsskólanámi tók Angela próf frá Listdansskóla Íslands í klassískum listdansi og fór erlendis í konunglega danska ballettskólann í kaupmannahöfn til að sækja sér frekari þekkingu og hæfni á sviði listdansmenntunnar. Við lok menntaskólaáranna hóf hún að starfa um tíma sem danskennari í Jazzdeild Dansskóla Jóns Péturs- og Köru sem í dag er Dansskóli Köru. Angela hefur einnig fengist við Kóreógrafíutengd verkefni, og samdi m.a dansa fyrir hljómsveitar vídeó og leikhús uppsetningar. Gott dæmi um þessa vinnu er tónlistarmyndbandið “Stay” með hljómsveitnni "Hurts". Angela skiptir um stefnu og minnkar við sig danstengd verkefni árið 2011 og tekur sama ár miðpróf frá Söngskólanum í Reykjavík í klassískum óperusöng. Fluttist síðan til Berlínar, og var í einkanámi í Óperusöng hjá Prof. Janet Williams í rúm tvö ár. Samhliða því að uppgötva tónlistar- og sviðslistaheim óperunnar endurvakti Angela aftur tengingu sína við myndlistina á Berlinar Námsárunum. Angela hóf nám í “Akademie für Malerei in Berlín” hjá Prof. Ute Wöllmann og hélt vikulega fyrirlestra og vinnustofu spjall í berlín undir hennar leiðsögn. Angela lauk prófi bæði í Þýsku og þýskri menningarsögu innan deildar erlendra tungumála við “Freie universität in Berlin” árið 2016. Árið 2019, hélt Angela samsýningar á málverkum sínum í Wiesbaden, Toulouse, Konstanz, Kaupmannahöfn og Luxembourg. Í kjölfarið á heimsfaraldrinum fluttust Angela og hennar maður, Benedikt Kristjánsson, til Íslands ásamt fjölskyldu þeirra. Angela hóf störf sem myndlistakennari í Grundaskóla á Akranesi árið 2021 og hefur sett upp sýningar bæði í leik og söng fyrir skólann. Árið 2022 lauk Angela MT- gráðu frá Háskóla Íslands í listgreinakennslu. Angela hefur sett upp „vinnustofur“ á listasöfnum í Reykjavík og víðar. En þar má m.a. nefna vinnustofuna „Geometrískar Halloweenhallir“ sem sett var upp við mikinn fögnuð í Gerðarsafni í Kópavogi. Og vinnustofuna ,, Óður til Tómatsins“ sem hlaut einnig mikið lof og síðar viðurkenningu úr barnamenningarsjóði og hefur smiðjan verið flutt á þó nokkrum barnamenningarhátíðum á Íslandi. Árið 2023 tekur Angela við listgreinakennslu í fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi og leiðir þar í dag listgreinakennslusvið skólans en þess má geta að árið 2026 fékk Angela viðurkenningu frá Kennarasambandi íslands (undir formerkjum JAKA) fyrir frammúrskarandi kennsluverkefni í jafnréttismálum. En verkefnið fólst í því að kenna jafnrétti gegnum listrannsókn.
Árið 2023 samdi Angela vísnavakningu Gutta sem er lítið ljóða leikhús flutt með strengjakvartett. Fékk þetta verkefni einnig úthlutun úr barnamenningarsjóði. Hugmyndin og ljóðin er sprottin upp úr vísnabókinni en bindur sagan ljóðin saman í sögu um dreng sem fer í leiðangur og eignast einstakt samband við ránfuglinn krumma. Árið 2023 opnaði Angela einkasýninguna "Næturgalin" í Akranesvita. Á öllum hæðum vitans sem vakti athygli víða. Í nóvember 2023 gaf Bylgja Dís Gunnarsdóttir út hugleiðslu kort sem Angela sá um að teikna og hanna táknmyndir fyrir. Hún opnaði sýningu á olíuverkum á Bókasafni Akraness nóvember 2023 en einnig í Safnaðarheimili Hafnafjarðarkirkju í desember það sama ár. Árið 2025 fékk Angela menningarstyrk frá SSV og frá Akraneskaupsstað fyrir myndlistarsýninguna Olíubrák. Sýningin var sýnd í Skálholti sumarið 2025 og svo á Akranesi um haustið sama ár. Sýningin var samsett úr 14 olíuverkum sem öll voru máluð upp úr ljóðum skrifuðum af konum sumum algerlega óþekkt skúffuskáld. Á röð sumartónleikanna í Skálholti, sem er elsta Barrokk tónlistarhátíð á Norðurlöndum hefur Angela séð um smiðjur og myndlistarnámskeið en hefur hún einnig haft umsjón með sýningarstjórn undir hatti tónleikaraðarinnar. Tengingar Angelu í heimi klassískrar tónlistar, danslistar og myndlistar eru trygg tengsl byggð á menntun og reynslu bæði hérlendis en ekki síður erlendis. Fjölbreytt þekking á ólíkum sviðum ofangreindra listgreina er hennar helsti styrkleiki og kemur að góðum notum í öllum hennar störfum. Árið 2026 var Angela heiðruð af Akraneskaupstað og fékk titilinn Bæjarlistamaður Akraneskaupsstaðar árið 2026.
lifðu fyrir listina án hennar er allt leiðinlegt
Hafðu samband ef þú vilt eiga við mig orð eða tvö. Þrjú orð eru líka vel metin og ef þau verða fjögur eða fleiri er aldrei að vita nema samtalið gæti orðið og skemmtilegt.